Ég er greinilega ennþá við sama heygarðshornið eða hvað maður segir
nú annars. Ég hef ekkert tekið mig á að blogga en ég vil þar kenna
um bæði meðfæddri og áunninni leti. En ég hef að vísu verið dálítið
busy í vetur...og ég sem hélt að fjórði bekkur ætti að vera
auðveldur, að vísu eru áfangarnir í sjálfu sér ekki gífurlega
erfiðir það er samt alltaf hellingur að gera. En ég nenni þessu
ekki lengur, ekki bíða í ofvæni eftir næstu færslu, hún kemur en
Guð má vita hvenær

Gunna